Fotbolti.net
13.05.22 - 21:49
Elvar Geir Magnússon

Rúnar Páll: Vorum bara heppnir að fá stig

Auglýsing
Rúnar Páll: Vorum bara heppnir að fá stig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Kórdrengir og Fylkir gerðu jafntefli í Safamýri í kvöld þar sem Kórdrengir voru mun betri í fyrri hálfleik en leikur Fylkis batnaði mikið eftir hlé og jafntefli niðurstaðan.
„Við vorum bara heppnir að ná í stig hérna, við mættum hörkuliði," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis.

„Þeir létu okkur finna fyrir því. Við verðum að vera tilbúnir í svona leiki í sumar. Ég er ánægður með þetta stig úr því sem komið var. Svo bjargar Óli (Ólafur Kristófer Helgason markvörður) okkur frá tapi í lokin."

Rúnar sagði að frammistaða Fylkisliðsins hafi ekki verið góð en vildi fá vítaspyrnu í stöðunni 1-1. Hann vildi þó ekki ræða nánar um dómgæsluna í leiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.