Fotbolti.net
13.09.20 - 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Bale og Reguilon æfðu ekki með hópnum - Á leið burt?

Bale og Reguilon æfðu ekki með hópnum - Á leið burt?
Canon

Mynd: Getty Images

Gareth Bale og Sergio Reguilon hafa ekki verið að æfa með leikmannahópi Real Madrid um helgina og gætu þeir báðir verið á förum frá félaginu á næstu vikum.
Reguilon er eftirsóttur af Sevilla og Manchester United. Rauðu djöflarnir vilja kaupa Reguilon en Sevilla vill fá hann á lánssamningi.

Bakvörðurinn myndi kjósa Sevilla en óljóst er hvort Real Madrid sé reiðubúið að samþykkja lánstilboð frá félaginu.

Real er líklega tilbúið til að leyfa Bale að fara á frjálsri sölu ef eitthvað félag er reiðubúið til að mæta himinháum launakröfum velsku stórstjörnunnar.

Bale á tvö ár eftir af samningi sínum við Real þar sem hann fær um 600 þúsund evrur í vikulaun fyrir skatt.

Man Utd hefur einnig verið orðað við Bale í ljósi þess að félagaskipti Jadon Sancho virðast ekki ætla að ganga í gegn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.