þri 13. október 2020 17:15
Magnús Már Einarsson
Shaqiri: Ég ákvað að vera áfram hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Xherdan Shaqiri segir að það hafi verið sín ákvörðun að vera áfram hjá Liverpool. Svisslendingurinn var orðaður við ítölsk og þýsk félög undir lok félagaskiptagluggans en hann fór ekki neitt.

„Í fótbolta eru alltaf sögusagnir og leikmenn hugsa um stöðu sína. Það er algjörlega eðlilegt," sagði Shaqiri.

„Að sjálfsögðu hef ég hugsað um þetta og það er algjörlega eðlilegt. Á endanum ákvað ég að vera áfram hér. Félagaskiptaglugginn er búinn að loka."

„Núna fer ég aftur að æfa með liðinu eftir þessa landsleiki og reyni að halda áfram að standa mig vel eins og ég hef gert áður, líka hjá Liverpool. Það er markmið mitt."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner