Kompany vill taka við Bayern - Isak og Brobbey efstir á blaði Arsenal - McKenna orðaður við Chelsea og Man Utd
   mán 13. nóvember 2017 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristrún skoraði eftir tvær mínútur í fyrsta leik
Kristrún í leik með Selfossi.
Kristrún í leik með Selfossi.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Kristrún Rut Antonsdóttir skoraði eftir tvær mínútur í sínum fyrsta leik með Chieti í ítölsku B-deildinni í gær.

Frá þessu er greint á Sunnlenska.is

Kristrún Rut er fædd árið 1994 og stóð sig frábærlega í sumar þar sem hún átti stóran þátt í að Selfoss komst beint upp í Pepsi-deildina eftir eitt ár í 1. deild kvenna.

Hún hélt til Ítalíu eftir sumarið og samdi við Chieiti í B-deild. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í gær og var ekki lengi að láta til sín taka

Chieti tók á móti botnliði Real Colombo og vann öruggan 4-0 sigur. Kristrún Rut skoraði fyrsta markið eftir tvær mínútur þegar boltinn féll fyrir hana af varnarmanni og hún renndi knettinum í netið.

Þetta var eina mark fyrri hálfleiks en Chieti bætti við þremur mörkum í síðari hálfleik og eitt þeirra kom eftir að Kristrún hafði átt skot í stöng. Hún spilaði 90 mínútur og átti góðan leik.

Að loknum fimm umferðum er Chieti í 2. sæti í sínum riðli í Seríu B.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner