Fotbolti.net
13.11.22 - 20:34
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Grifo stórkostlegur er Freiburg skellti Union

Vincenzo Grifo skoraði þrennu á sextán mínútum

Vincenzo Grifo skoraði þrennu á sextán mínútum

Canon

Mynd: EPA

Ítalski vængmaðurinn Vincenzo Grifo skoraði þrennu fyrir Freiburg sem vann Union Berlin, 4-1, í topparáttuslag í þýsku deildinni í dag.
Freiburg og Union hafa óvænt verið í toppbaráttunni í byrjun leiktíðar en þau voru bæði með 27 stig fyrir leikinn í dag.

Heimamenn í Freiburg byrjuðu leikinn með látum. Varnarmaður Union handlék knöttinn í eigin teig og gat dómarinn ekki annað en bent á punktinn. Vincenzo Grifo skoraði af öryggi og gaf markið honum greinilega mikinn kraft því tveimur mínútum síðar tvöfaldaði hann forystuna.

Lætin voru langt í frá búin. Union fékk vítaspyrnu á 8. mínútu og gat komið sér inn í leikinn en vítaspyrna Robin Knoche hafnaði í stönginni.

Hvernig gat vont versnað fyrir Union? Jú, níu mínútum síðar var Diogo Leite, varnarmaður liðsins, rekinn af velli eftir að hann togaði sóknarmann Freiburg niður í teignum. Rautt spjald og vítaspyrna. Grifo fór aftur á punktinn og skoraði þriðja mark sitt.

Michael Gregoritsch gerði fjórða markið undir lok fyrri hálfleiks. Union náði sárabótamarki fimm mínútum fyrir leikslok en þá nýtti Sven Michel vítaspyrnu sína. Lokatölur 4-1 fyrir Freiburg sem er í 2. sæti með 30 stig en Union með 27 stig í 5. sæti.

Mainz gerði þá 1-1 jafntefli við Eintracht Frankfurt. Jonathan Burkhardt kom heimamönnum í Mainz yfir undir lok fyrri hálfleiks en Randal Kolo Muani sá til þess að Frankfurt færi ekki tómhent heim og tryggði stigið með marki á 67. mínútu.

Freiburg 4 - 1 Union Berlin
1-0 Vincenzo Grifo ('4 , víti)
2-0 Vincenzo Grifo ('6 )
2-0 Robin Knoche ('10 , Misnotað víti)
3-0 Vincenzo Grifo ('20 , víti)
4-0 Michael Gregoritsch ('45 )
4-1 Sven Michel ('85 , víti)
Rautt spjald: Diogo Leite, Union Berlin ('19)

Mainz 1 - 1 Eintracht Frankfurt
1-0 Jonathan Michael Burkardt ('40 )
1-1 Randal Kolo Muani ('67 )
Eintracht Frankfurt gerði jafntefli við Mainz

Eintracht Frankfurt gerði jafntefli við Mainz

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Bayern34+8689
1Borussia D.2+56
2Bayern2+46
2Borussia D.34+3673
3RB Leipzig34+1965
3Hamburger2+36
4Stuttgart34+2262
4Borussia M.2+14
5Hoffenheim2+14
5Hoffenheim34+1361
6Bayer34+2159
6Freiburg2+14
7Freiburg34-647
7Schalke 041+23
8Hannover1+13
8Eintracht Frankfurt34-444
9Augsburg34-1643
9Hertha203
10Stuttgart2-13
10Mainz34-940
11Wolfsburg2-23
11Union Berlin34-1439
12Borussia M.34-1138
12Augsburg2-11
13Hamburger34-1438
13Eintracht Frankfurt2-11
14Koln34-1432
14Bayer2-21
15Mainz2-20
15Werder34-2332
16Koln2-30
16Wolfsburg34-2429
17RB Leipzig2-30
17Heidenheim34-3126
18St. Pauli34-3126
18Werder2-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.