Fotbolti.net
13.11.26 - 16:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

24 gráðu munur milli leikja íslenska liðsins

Frá æfingu landsliðsins á Hristo Botec leikvanginum í gær.

Frá æfingu landsliðsins á Hristo Botec leikvanginum í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Eimskip
Framundan hjá karlalandsliðinu eru tveir leikir í Þjóðadeildinni, fyrst er leikur gegn Búlgaríu í Plovdiv í kvöld og svo er leikur gegn Lúxemborg á mánudag.

Eins og veðurspáin er núna, hjá yr.no, þá verður 24 gráðu munur á milli leikja.

Þegar leikurinn í kvöld hefst, klukkan 21:45 að staðartíma, á að vera 15°C hiti í Plovdiv. Leikurinn hefst klukkan 19:45 að íslenskum tíma.
Á mánudag, samkvæmt sömu veðurstofu, verður mikið frost, eða -9°C, þegar leikur Íslands og Lúxemborg hefst klukkan 17:00.

Að óbreyttu verður úrkomulaust og væg austanátt í Laugardalnum á mánudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.