Fotbolti.net
13.11.26 - 17:34
Brynjar Ingi Erluson

Albert byrjaður að æfa aftur - Gæti spilað á morgun

Albert byrjaður að æfa aftur - Gæti spilað á morgun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er mættur aftur til æfinga með Lazio og gæti verið klár í slaginn þegar keppni hefst á ný eftir landsleikjahléið.
Albert hefur verið frá keppni síðan í lok september eftir að hafa meiðst á öxl í landsleiknum gegn Eistlandi á Laugardalsvelli.

Meiðslin reyndust alvarlegri en talið var í fyrstu og hefur Albert verið frá keppni allan þennan tíma. Það bárust hins vegar frábærar fréttir í gær þegar hann sneri aftur til æfinga með liðsfélögum sínum.

Albert tók þátt í æfingu með hópnum í fyrsta sinn frá meiðslunum og ef hann er verkjalaus gæti hann fengið að spreyta sig í æfingaleik gegn Mgarr United, sem leikur í B-deildinni á Möltu, á morgun.

Leikurinn hefst klukkan 10:00 að íslenskum tíma og vonandi verður Albert klár í slaginn, enda yrði endurkoma hans mikil búbót fyrir Lazio sem situr á toppi ítölsku deildarinnar með 29 stig eftir ellefu leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.