13.11.26 - 19:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andri Lucas fyrir ofan risanöfn á lista - „Bara gaman af þessu"

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: KSÍ

Robert Lewandowski er einn mesti markaskorari síðustu ára.

Mynd: EPA

Haaland er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni.

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas Guðjohnsen hefur nýtt færi sín afskaplega vel á þessu tímabili. Hann hefur skorað tíu mörk úr 20 skotum á tímabilinu.
Hann er með bestu nýtingu sóknarmanna í álfunni og eru því stór nöfn fyrir neðan hann á lista. Þar á meðal eru menn eins og Raphinha og Erling Braut Haaland.
Andri, sem er í byrjunarliðinu gegn Búlgaríu í kvöld, var spurður út í nýtinguna í viðtali í vikunni.

TENGT EFNI
Atvinnumaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen - Fyrri hluti
Er tilfinningin alltaf þannig að þú sért að fara skora?
„Ég reyni alltaf að vera inni í boxinu og er klár þegar boltinn kemur. Það eru náttúrulega stórir og sterkir hafsentar í þessari deild ég reyni að vinna mig inn 2-3 metra og svæði í boxinu til að koma mér í færi. Þegar boltinn dettur fyrir mig þá er einhver tilfinning að ég sé að fara þruma honum í markið. Þannig vonandi heldur það bara áfram."
Ertu að skoða þessa lista?

„Ég sá einhverja tölfræði og einhver nöfn, svolítið stór nöfn, á lista um daginn. Það er bara gaman af þessu. Ég vil halda fókusnum, halda áfram að spila vel, skora og bara hjálpa liðinu. Ég vil gera allt sem ég get til þess að eiga gott tímabil."
Talar um að vinna þér inn 2-3 metra hér og þar, ertu að stúdera einhvern leikmann eða er þetta náttúrulegt? Ertu kannski að horfa til pabba þíns?
„Við förum alveg yfir klippur og ég fer sjálfur líka yfir klippur eftir leiki. Auðvitað horfi ég á marga fótboltaleiki líka og það eru framherjar sem eru ótrúlega góðir í þessu í heiminum eins og t.d. Lewandowski og Haaland, leikmenn sem eru bara hrikalega sterkir inni í boxinu."
„En á sama tíma þá er þetta einhvern veginn bara þannig að í mómentinu þá nær maður einhvern veginn bara að þefa upp hvar svona boltinn mun detta eða einhver hættusvæði og reyna að vera bara klár," sagði Andri sem spilar sinn 44. landsleik í kvöld. Í leikjunum 43 til þessa hefur hann skorað tólf mörk.
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að neðan.