13.11.26 - 15:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ingimar Elí hættir hjá ÍA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA greinir frá því í dag að framkvæmdastjóri félagsins, Ingimar Elí Hlynsson, hafi óskað eftir að láta af störfum og muni gera það þegar nýtt ár gengur í garð.
Ingimar var ráðinn framkvæmdastjóri í ágúst 2024 eftir að hafa áður starfað sem sölustjóri Icelandair. Ingimar, sem lék á sínum tíma tvo U19 landsleiki, lék á árunum 2014 og 2015 með ÍA og lauk leikmannaferlinum sem leikmaður venslaliðsins Kára.

Úr tilkynningu ÍA
Ingimar mun starfa hjá félaginu til áramóta og vinna með stjórn og starfsfólki í þeim verkefnum sem eru í gangi og framundan eru.
Stjórn Knattspyrnufélags ÍA þakkar Ingimari fyrir hans framlag og störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar í því sem tekur við.
Auglýst verður eftir nýjum framkvæmdastjóra félagsins fljótlega.