Fotbolti.net
13.11.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Ísland um helgina - Toppsæti riðilsins tryggt í kvöld?

Ísland heimsækir Búlgaríu

Ísland heimsækir Búlgaríu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Þrír landsleikir eru spilaðir um helgina, en A-landslið karla heimsækir Búlgaríu í kvöld og á möguleika á því að tryggja sér toppsæti riðilsins í Þjóðadeildinni.
Líklegt byrjunarlið Íslands í Búlgaríu
TENGT EFNI

Líklegt byrjunarlið Íslands í Búlgaríu

Ísland er á toppi D-riðils C-deildarinnar með átta stig og getur styrkt stöðu sína enn frekar með sigri. Ef íslenska liðið vinnur sinn leik og Eistland tapar stigum gegn Lúxemborg verður Ísland komið í afar góða stöðu í baráttunni um umspilssæti á EM.

Á morgun verða síðan tvö yngri landslið í eldlínunni. U19 ára landslið karla mætir Finnlandi klukkan 15:00, en íslenska liðið er með eitt stig eftir að hafa gert jafntefli við Evrópumeistara Spánar á dögunum.

U15 ára landslið kvenna mætir svo Þýskalandi á þróunarmóti UEFA, en sá leikur hefst klukkan 14:00.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:

Þjóðadeild karla - C-deild, riðill 4
19:45 Lúxemborg-Eistland (Stade de Luxembourg)
19:45 Búlgaría-Ísland (Hristo Botev Stadium)

Laugardagur:

U15 kvenna - þróunarmót UEFA
14:00 Þýskaland - Ísland

U19karla - undankeppni EM
15:00 Finnland - Ísland
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.