13.11.26 - 17:44
Brynjar Ingi Erluson
Slæmar fréttir fyrir Orra og félaga

Barrenetxea verður frá fram í apríl

Mynd: EPA

Orri og Barrenetxea (t.h) á æfingu Sociedad

Mynd: EPA

Orri og Oyarzabal gætu leitt framlínuna saman

Mynd: EPA

Barrenetxea verður frá fram í apríl

Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson og félagar hans í Real Sociedad fengu slæmar fréttir á dögunum þegar spænski landsliðsmaðurinn Ander Barrenetxea varð fyrir alvarlegum meiðslum aftan í læri.

TENGT EFNI
Orri orðaður við Man Utd - Verðmiðinn sagður yfir 20 milljónir evra
Spænski vængmaðurinn er mikilvægur hlekkur í sóknarleik Sociedad og hefur meðal annars lagt upp tvö mörk fyrir Orra á þessari leiktíð, sigurmarkið gegn Rayo Vallecano og markið sem Íslendingurinn skoraði gegn Lyon í Evrópudeildinni.
Barrenetxea reif vöðva í læri og verður frá keppni næstu mánuði, en reiknað er með að hann snúi ekki aftur fyrr en undir lok tímabilsins.
Fjarvera hans er mikið áfall fyrir Sociedad enda er hann ekki aðeins skapandi og mikilvægur í sóknarleiknum, heldur gegnir hann einnig lykilhlutverki í varnarleik liðsins.
Þegar Sociedad missir boltann færist Barrenetxea gjarnan niður í bakvarðarstöðuna til að mynda fimm manna varnarlínu og hefur sú hreyfing verið mikilvæg fyrir jafnvægi liðsins.
Meiðslin gætu því þvingað Pellegrino Matarazzo, þjálfara Sociedad, til að breyta um leikkerfi og þar gæti Orri Steinn komið sterkur inn í myndina.
Matarazzo gæti ákveðið að spila 4-4-2 og teflt Orra fram við hlið Mikel Oyarzabal, fyrirliða liðsins. Hann hefur um nokkurra mánaða skeið leitað leiða til að koma þeim báðum fyrir í sókninni og gæti fjarvera Barrenetxea orðið til þess að hann láti loksins reyna almennilega á þá hugmynd.
„Matarazzo hefur í marga mánuði reynt að byggja sóknarleikinn í kringum Oyarzabal og Orra og ég er mjög hrifinn af þeirri hugmynd,“ sagði Marco Antonio Sande hjá COPE.
Sociedad gæti einnig þurft að skoða möguleikann á að styrkja hópinn í janúarglugganum, en á sama tíma hefur Orri sjálfur verið orðaður við stórlið eftir frábæra frammistöðu sína og mikla markaskorun.
Manchester United, Tottenham og Newcastle eru meðal þeirra félaga sem sögð eru fylgjast grannt með Íslendingnum, sem hefur verið á mikilli siglingu á Spáni.
Það verður því áhugavert að sjá hvernig Matarazzo bregst við fjarveru Barrenetxea og hvort breytingarnar geti jafnvel orðið Orra til góðs, svo hann geti haldið áfram að skína í spænsku deildinni.