Fotbolti.net
14.01.21 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Þetta sagði Bielsa á fréttamannafundi - „Vorum niðurlægðir"

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds.

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds.

Canon

Mynd: Getty Images

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag en liðið fær Brighton í heimsókn á laugardaginn.

Leeds fékk 3-0 skell gegn D-deildarliði Crawley í bikarnum um síðustu helgi og kom sá leikur að sjálsögðu við sögu á fundinum en hér má sjá samantekt af því helsta sem þar kom fram.
Staðan á hópnum fyrir leikinn gegn Brighton:
Diego Llorente, Tyler Roberts og Liam Cooper eru allir klárir í slaginn en Kalvin Phillips tekur út leikbann vegna uppsafnaðra áminninga.

Um viðbrögð leikmanna eftir skellinn gegn Crawley:
„Við vorum niðurlægðir af andstæðingum okkar. Það voru 60 sæti á milli þessara liða og gagnrýnin á rétt á sér. Bayern München og Atletico Madrid eru dottin úr bikarkeppnunum í heimalandi sínu, þeir þurftu að kyngja svipuðum töpum og við," segir Bielsa.



Um Ben White, leikmann Brighton, sem er orðaður við Liverpool:
„Ben White hefur sýnt að hann er úrvalsdeildarleikmaður. Við allir hrífumst af honum sem leikmanni. Við virðum hann elskum sem manneskju. Ég vona að hann muni vaxa enn frekar á ferlinum því hann á það skilið," segir Bielsa en White lék á lánssamningi hjá Leeds á síðasta tímabili.

Um lélega frammistöðu Kiko Casilla:
Varamarkvörðurinn Kiko Casilla spilaði gegn Crawley og átti vægast sagt lélegan leik.

„Ég ber fullt traust til Kiko og mun gera allt sem ég get til að hjálpa honum. Fólk má ekki gleyma því að hann hefur spilað 40 leiki fyrir Real Madrid og hjálpaði okkur að komast upp í úrvalsdeildina. Liðsfélagar hans hafa trú á honum og þeim þykir vænt um hann," segir Bielsa.
Kiko Casilla.

Kiko Casilla.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Ipswich Town1+13
7Leeds1+13
8Man City1+13
9Liverpool101
10Newcastle101
11Chelsea000
12Fulham000
13Bournemouth1-10
14Sunderland1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.