Fotbolti.net
14.01.22 - 11:10
Elvar Geir Magnússon

Enn og aftur frestað hjá Jóa Berg og félögum - Áttu að mæta Leicester

Turf Moor, heimavöllur Burnley.

Turf Moor, heimavöllur Burnley.

Canon

Mynd: Getty Images

Heimaleik Burnley gegn Leicester sem átti að vera á morgun hefur verið frestað vegna Covid tilfella og meiðsla hjá Burnley. Jóhann Berg Guðmundsson leikur með Burnley.

Leikurinn átti að vera klukkan 15 á morgun en þrír aðrir leikir ættu að fara fram á þeim tíma á morgun.

Það er orðið vanalegt að ýmsum leikjum sé frestað í ensku deildinni og nóg að gera hjá mótanefnd deildarinnar að finna nýja leikdaga. Þetta er 20. úrvalsdeildarleikurinn sem er frestað vegna Covid.

Burnley hefur orðið illa fyrir barðinu á frestunum og aðeins leikið sautján leiki, fæsta leiki af öllum liðum. Samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar verða félög að spila ef þau hafa þrettán útleikmenn og einn markvörð tiltækan.


Föstudagur:
20:00 Brighton - Crystal Palace

Laugardagur:
12:30 Man City - Chelsea
15:00 Burnley - Leicester - FRESTAÐ
15:00 Newcastle - Watford
15:00 Norwich - Everton
15:00 Wolves - Southampton
17:30 Aston Villa - Man Utd

Sunnudagur:
14:00 Liverpool - Brentford
14:00 West Ham - Leeds
16:30 Tottenham - Arsenal
Enn og aftur frestað hjá Jóa Berg og félögum - Áttu að mæta Leicester
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.