Fotbolti.net
14.01.23 - 22:33
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Sociedad vann í fjörugum Baskaslag

Mikel Oyarzabal fagnar þriðja marki Sociedad

Mikel Oyarzabal fagnar þriðja marki Sociedad

Canon

Mynd: EPA

Real Sociedad 3 - 1 Athletic
1-0 Alexander Sorloth ('25 )
2-0 Takefusa Kubo ('37 )
2-1 Oihan Sancet ('40 )
3-1 Mikel Oyarzabal ('63 , víti)
Rautt spjald: Yeray Alvarez, Athletic ('60)
Real Sociedad er með montréttinn í Baskalandi eftir að hafa unnið Athletic Bilbao, 3-1, í San Sebastian í dag.

Norski framherjinn Alexander Sorloth kom heimamönnum yfir á 25. mínútu áður en japanski sóknartengiliðurinn Takefusa Kubo tvöfaldaði forystuna tólf mínútum síðar.

Oihan Sancet minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks en það reyndist eina mark Athletic í leiknum.

Þegar hálftími var eftir fékk Yeray Alvarez, varnarmaður Athletic, rauða spjaldið eftir að hafa brotið á Kubo innan teigs. Heimamaðurinn Mikel Oyarzabal skoraði úr vítaspyrnunni og tryggði Sociedad sigurinn.

Sociedad er í 3. sæti með 35 stig en Athletic í 8. sæti með 26 stig.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid11+1428
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Deportivo12+115
9Racing Santander12-1314
10Alaves12-213
11Villarreal11012
12Celta11012
13Espanyol12-112
14Vallecano10-512
15Getafe11-812
16Osasuna12-1112
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.