14.02.20 - 21:54
Ívan Guðjón Baldursson
England: Markalaust hjá Wolves og Leicester

Choudhury var ekki sáttur þegar hann sá seinna gula spjaldið fara á loft.

Mynd: Getty Images

Wolves 0 - 0 Leicester:
Rautt spjald: Hamza Choudhury, Leicester ('76)

Wolves og Leicester mættust í Evrópuslag í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Leikurinn var tíðindalítill og einkenndist af miklu miðjumoði þar sem hvorgt lið gaf mikið af færum á sig.
Bæði lið áttu marktilraunir en ekkert markvert gerðist fyrr en undir lok fyrri hálfleiks þegar Willy Boly skallaði knöttinn í netið. Markið var þó dæmt af með myndbandstækni vegna rangstöðu.
Á 76. mínútu fékk Hamza Choudhury sitt annað gula spjald og var sendur í sturtu. Hann rann til með boltann á miðjunni, missti hann frá sér og felldi Leander Dendoncker klaufalega í leiðinni.
Adama Traore hafði komið inn af bekknum tíu mínútum fyrr og reyndist hann hættulegur á lokakaflanum, en inn vildi boltinn ekki. Raul Jimenez fékk frábær skallafæri undir lokin án þess þó að koma knettinum í netið. Hann gæti átt erfitt með svefn í nótt.
Lokatölur urðu því 0-0 og er Leicester með 50 stig í þriðja sæti deildarinnar. Úlfarnir eru með 36 stig í sjöunda sæti, þremur stigum frá Evrópusæti.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |