Fotbolti.net
14.02.20 - 18:15
Elvar Geir Magnússon

Mourinho: Dele Alli sá strax eftir þessu

Dele Alli, miðjumaður Tottenham og enska landsliðsins.

Dele Alli, miðjumaður Tottenham og enska landsliðsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Í byrjun vikunnar baðst Dele Alli, leikmaður Tottenham, afsökunar á myndbandi sem hann birti á Snapchat.

Dele Alli var sakaður um rasisma en hann gerði grín að kóróna-veirunni. Enski landsliðsmaðurinn var með grímu í myndbandinu og beindi svo myndavélinni að asískum manni.

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var ekki lengi að fyrirgefa Dele Alli.
„Ég spjallaði við Dele en það var stutt samtal því hann sá mikið eftir þessum mistökum. Hann ætlaði ekki að hneyksla eða særa. Hann sá strax eftir þessu," segir Mourinho.

„Hann sýndi eftirsjá og gerði sér grein fyrir mistökunum. Ég á son á sama aldri og Dele. Þegar þú ert opinber persóna verður þú að fara mjög varlega á samfélagsmiðlum. Dele er frábært strákur og það síðasta sem hann mun tengjast eru kynþáttafordómar."

Tottenham er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið mætir Aston Villa á sunnudag. Þess má geta að Giovani Lo Celso er klár í slaginn hjá Spurs eftir að hafa misst af bikarleiknum gegn Southampton vegna meiðsla.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.