Fotbolti.net
14.02.21 - 17:14
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Sigrar hjá Real Madrid og Sociedad

Spánn: Sigrar hjá Real Madrid og Sociedad
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid og Real Sociedad unnu leiki sína í spænsku deildinni í dag.
Real Madrid tók á móti Valencia og vann þægilegan sigur þökk sé mörkum frá Karim Benzema og Toni Kroos í fyrri hálfleik.

Sigur Real var aldrei í hættu og er liðið í öðru sæti, með 49 stig eftir 23 umferðir.

Valencia er í neðri hluta deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Real Madrid 2 - 0 Valencia
1-0 Karim Benzema ('12)
2-0 Toni Kroos ('42)

Það var sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak sem gerði eina mark leiksins er Real Sociedad hafði betur gegn Getafe.

Liðin áttust við í fyrri leik dagsins og var viðureignin hrikalega bragðdauf og tíðindalítil, bæði fyrir og eftir mark Isak. Í heildina rötuðu tvö skot af níu á rammann allan leikinn.

Sociedad er í fimmta sæti eftir sigurinn, sex stigum frá Sevilla í Meistaradeildarsæti.

Getafe 0 - 1 Real Sociedad
0-1 Alexander Isak ('30)
Spánn: Sigrar hjá Real Madrid og Sociedad
Canon

Mynd: Getty Images

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid11+1428
4Betis12+526
5Real Sociedad12020
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Deportivo12+115
9Racing Santander12-1314
10Alaves12-213
11Vallecano11-513
12Villarreal11012
13Celta11012
14Espanyol12-112
15Getafe11-812
16Osasuna12-1112
17Levante11-510
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.