Fotbolti.net
14.04.25 - 18:10
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Bournemouth og Fulham: Ein breyting hjá heimamönnum

Marcos Senesi kemur inn í lið Bournemouth

Marcos Senesi kemur inn í lið Bournemouth

Canon

Mynd: EPA

Bournemouth og Fulham spila síðasta leikinn í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Vitality-leikvanginum í Bournemouth klukkan 19:00 í kvöld.
Liðin eru bæði í baráttunni um að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Fulham er í 8. sæti með 48 stig en Bournemouth með 45 stig í 10. sæti.

Bournemouth er áfram án Justin Kluivert og þá verður Ryan Christie frá út tímabilið.

Andoni Iraola gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu en Marcos Senesi kemur í vörnina og mun spila við hlið Dean Huijsen.

Marco Silva er með óbreytt lið frá óvænta 3-2 sigrinum á Liverpool í síðustu umferð.

Bournemouth: Arrizabalaga; Smith, Senesi, Huijsen, Kerkez; Cook, Adams; Semenyo, Scott, Ouattara; Evanilson.

Fulham: Leno; Castagne, Andersen, Bassey, Robinson; Berge, Lukic; Sessegnon, Pereira, Iwobi; Muniz.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Bournemouth11+418
5Liverpool10+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.