Svissneska liðið Thun fagnaði deildartitlinum í kvöld en liðið vann titilinn sem nýliði.
Liðið hefur hins vegar ekki verið sannfærandi undanfarna mánuði en liðið hefur aðeins fengið þrjú stig í síðustu sjö leikjum. Liðið tryggði sér endanlega titilinn 3. maí en lyfti bikarnum í dag.
Liðið hefur hins vegar ekki verið sannfærandi undanfarna mánuði en liðið hefur aðeins fengið þrjú stig í síðustu sjö leikjum. Liðið tryggði sér endanlega titilinn 3. maí en lyfti bikarnum í dag.
Liðið fékk svakalegan 8-3 skell gegn Young Boys í dag en það skemmdi ekki fyrir fagnaðarlátunum í leikslok. Liðið var 3-2 undir þegar liðið missti mann af velli með rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks. Staðan var síðan orðin 6-2 þegar annar leikmaður fékk rautt spjald.
Margir þekkja Young Boys úr Evrópukeppnum en liðið er í 6. sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Liðið getur í besta falli endað í 5. sæti þar sem annað þekkt lið, Basel, situr tveimur stigum á undan.
HISTÓRICO E INEXPLICÁVEL! ?????????
— Lance! (@lancenet) May 14, 2026
Fundado em 1898, o FC Thun finalmente é o dono da Suíça! O dia mais feliz dos 128 anos do clube terminou com 8 gols na rede. Alguém explica? ????
Apesar do apagão de hoje diante do Young Boys, o Thun dominou a temporada e provou que o improvável… pic.twitter.com/iZgkbnltLs


