Fotbolti.net
14.09.19 - 15:05
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Meistararnir heppnir að sleppa með stig frá Flórens

Sarri stýrði sínum fyrsta deildarleik af hliðarlínunni eftir að hafa verið fjarverandi með lungnabólgu fyrstu vikurnar.

Sarri stýrði sínum fyrsta deildarleik af hliðarlínunni eftir að hafa verið fjarverandi með lungnabólgu fyrstu vikurnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina 0 - 0 Juventus
Fiorentina og Juventus gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik helgarinnar í ítalska boltanum.

Lærisveinar Maurizio Sarri héldu boltanum þokkalega vel innan liðsins en náðu ekki að skapa sér mikið af færum. Douglas Costa fór meiddur af velli eftir átta mínútur og meiddist Miralem Pjanic svo rétt fyrir leikhlé.

Heimamenn komust nokkrum sinnum nálægt því að skora en heppnin var með Juventus. Þá átti Wojciech Szczesny góðan leik á milli stanganna þrátt fyrir slæm mistök í fyrri hálfleik þar sem hann var næstum búinn að gefa Fiorentina mark.

Franck Ribery var í byrjunarliði Fiorentina og skilaði góðri frammistöðu en tókst ekki að gera sigurmark.

Juve er á toppi deildarinnar með sjö stig eftir þrjár umferðir. Þetta var fyrsta stig Fiorentina sem tapaði fyrir Napoli og Genoa í fyrstu umferðunum.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone11+920
7Juventus10+317
8Cagliari11-516
9Bologna11+115
10Napoli10+414
11Torino11-214
12Genoa10-413
13Atalanta10-411
14Lecce11-1010
15Parma11-79
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.