AGF og Vejle áttust við í íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í dag en þetta var leikur í fyrstu umferðinni.
Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði AGF og spilaði hann 83. mínútur í kvöld.
Staðan var 2-0 fyrir heimamönnum í AGF í hálfleik og það var svo Jón Dagur sjálfur sem skoraði þriðja markið á 58. mínútu og kom heimamönnum í þægileg 3-0 forystu.
Gestirnir komu sér aftur inn í leikinn og skoruðu tvö mörk á stuttum tíma áður en AGF innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.
Kjartan Henry Finnbogason, sem var markahæsti leikmaður Vejle á síðasta tímabili, spilaði tuttugu mínútur fyrir gestina í dag og var hann ekki sáttur með það í viðtali eftir leikinn. Þar segist hann hafa verið svekktur og mjög hissa.
Kristófer Ingi Kristinsson kom þá inn af varamannabekknum hjá Young PSV sem vann Jong Ajax í þriðju umferð í hollensku B-deildinni.
Athugasemdir