Fotbolti.net
14.11.20 - 16:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Umboðsmaður Bailly varar Man Utd við

Umboðsmaður Bailly varar Man Utd við
Canon

Mynd: Getty Images

Eric Bailly hefur spilað fjóra leiki með Manchester United til þessa á leiktíðinni. Umboðsmaður hans hefur varað United við því að ef Bailly fer ekki að spila meira þá þurfi að skoða stöðu miðvarðarins og hans framtíð.

Bailly skrifaði undir tveggja ára samning við Manchester United í upphafi árs. Victor Lindelöf og Harry Maguire virðast vera þeir tveir miðverðir sem Ole Gunnar Solskjær, stjóri liðsins, vill nota.
Bailly hefur reyndar glímt við meiðsli á leiktíðinni en virðist þó ekki í áætlunum Solskjærs. Graziano Battistini, yfirmaður umboðsskrifstofunnar sem Bailly er hjá, tjáði sig á dögunum um stöðu Bailly.

„Ef Bailly fær réttu tækifærin getur hann verið einn af þeim sem hjálpar til við að leysa sum vandamál liðsins. Ef það gerist ekki þá verður að skoða stöðuna en það er of snemmt til að gefa eitthvað út."

„Milan hafði áhuga á honum en Bailly er einbeittur á United,"
sagði Battistini.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.