14.11.26 - 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aron Einar stoltur af Þórsurum - „Var í svitabaði heima"

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Einar Gunnarsson er mjög stoltur af uppeldisfélaginu sínu, Þór, eftir að liðið hélt sér uppi í Bestu deildinni síðasta sumar sem nýliði í deildinni.
Aron Einar spilaði með Þór í sumar en hann stoppaði stuttu og kom við sögu í einum leik sem var sigur á Íslandsmeisturum Víkings.

Hann var spurður út í árangur Þórs eftir 5-0 sigur íslenska landsliðsins á Búlgaríu í gær.
„Ég hélt að enginn ætlaði að spyrja mig út í þetta. Það var virkilega sætt. En égg get alveg sagt þér það, ég horfði ekki á síðustu tvo leikina. Af því að ég var bara í svitabaði heima. En ég er stoltur, virkilega ánægður með verkefnið sem þeir fóru af stað með," sagði Aron.
„Allir þeir sem að standa að baki á Þórsliðinu fóru bara í þetta verkefni að byggja upp á ungum, uppöldum leikmönnum og treysta á það í bland við smá reynslu og fengu náttúrulega himnasendingu frá bæði Kára (Árnasyni) og svo Óskari (Hrafni Þorvaldssyni) í Gyrði og Þorra. Stoltur af liðinu mínu að ná að halda sér uppi og gera þetta á þennan hátt og þennan veg. Að leyfa Þórsurum, hjartanu og hryggnum að vera til staðar og þetta vonandi bara springur þetta aftur á næsta ári."