14.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Besti markvörður deildarinnar snýr aftur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Markvörðurinn Mile Svilar er mættur aftur til æfinga með Roma eftir að hafa verið frá keppni frá upphafi tímabilsins vegna meiðsla.
Roma hefur leikið frábæran fótbolta undir stjórn Gian Piero Gasperini á þessari leiktíð og bárust félaginu enn frekari góð tíðindi í dag þegar þrír leikmenn sneru aftur til æfinga.
Gianluca Mancini og Paulo Dybala hófu báðir æfingar á ný og þá tók Svilar sína fyrstu æfingu síðan hann meiddist.
Svilar var valinn besti markvörður ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og eru þetta því kærkomnar fréttir fyrir Roma, sem ætlar sér að berjast um ítalska meistaratitilinn í ár.
Roma situr í þriðja sæti deildarinnar með 27 stig, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Lazio. Þá er félagið í 20. sæti deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu með fjögur stig.