Fotbolti.net
14.11.26 - 18:56
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið kvöldsins: Daramy byrjar gegn Portúgal

Byrjunarlið kvöldsins: Daramy byrjar gegn Portúgal
Canon

Mynd: EPA

Það eru nokkrir áhugaverðir leikir á dagskrá í Þjóðadeildinni í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Portúgal tekur á móti Danmörku í stórleik kvöldsins og leiðir Goncalo Ramos áfram sóknarlínuna eftir að Cristiano Ronaldo lagði landsliðsskóna á hilluna, með Joao Félix og Pedro Neto á köntunum og Bruno Fernandes í eyðunni fyrir aftan sig.

Jorge Jesus þjálfari kýs þá að nota Rúben Neves, leikmann Al-Hilal, á miðjunni frekar heldur en nafna hans Joao Neves, sem spilar fyrir PSG.

Brian Riemer, þjálfari Dana, teflir fram áhugaverðri sóknarlínu þar sem Mohamed Daramy byrjar á vinstri kanti með Rasmus Höjlund uppi á topp og Gustav Isaksen hægra megin.

Lærlingar Heimis Hallgrímssonar í landsliði Írlands heimsækja þá Austurríki í jöfnum riðli. Írar eru í þriðja sæti, þremur stigum á eftir toppliði Austurríkis.

Troy Parrott og Adam Idah leiða sóknarlínu Íra gegn sterkum andstæðingum. Michael Gregoritsch, sem átti erfitt uppdráttar með Bröndby í fyrra, leiðir sóknarlínu Austurríkismanna. Hann hefur byrjað nýtt tímabil af miklum krafti með Augsburg og er kominn með 5 mörk í 8 leikjum í efstu deild í Þýskalandi.

Stórstjörnurnar Alexander Isak og Viktor Gyökeres leiða svo sóknarlínu Svíþjóðar sem leikur undir stjórn Graham Potter. Úrvalsdeildarleikmennirnir Yasin Ayari, Hugo Larsson, Gabriel Gudmundsson og Anthony Elanga eru einnig í byrjunarliðinu ásamt Victor Lindelöf. Dejan Kulusevski og Alieu Njie eru meðal varamanna.

Svíar taka á móti Bosníu og geta innsiglað toppsæti riðilsins með sigri. Pólland og Rúmenía eru einnig með í riðlinum og mætast í kvöld, en þar leiðir Robert Lewandowski sóknarlínu Pólverja.

Sead Kolasinac og Ermedin Demirovic eru í byrjunarliði Bosníu ásamt hinum bráðefnilega Kerim Alajbegovic og Amar Dedic, bakverði Newcastle United.

Portúgal: D.Costa, Dalot, Veiga, Dias, A.Costa, Vitinha, R.Neves, B.Fernandes, Neto, Felix, Ramos

Danmörk: Hermansen, Bah, Provstgaard, Andersen, Mæhle, Hjulmand, Damsgaard, Höjbjerg, Isaksen, Daramy, Höjlund



Austurríki: Schlager, Posch, Lienhart, Danso, Mwene, Laimer, Seiwald, Baumgartner, Schmid, Lang, Gregoritsch

Írland: Kelleher, O'Shea, Collins, Scales, Abankwah, Manning, Moylan, Molumby, Azaz, Parrott, Idah



Svíþjóð: Johansson, Svensson, Lagerbielke, Lindelöf, Gudmundsson, Elanga, Larsson, Ayari, Nanasi, Gyökeres, Isak

Bosnía: Zlomislic, Radeljic, Katic, Kolasinac, Dedic, Basic, Gigovic, Demirovic, Alajbegovic, Bajraktarevic, Tabakovic
Byrjunarlið kvöldsins: Daramy byrjar gegn Portúgal
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið kvöldsins: Daramy byrjar gegn Portúgal
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið kvöldsins: Daramy byrjar gegn Portúgal
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.