14.11.26 - 22:47
Ívan Guðjón Baldursson
Englendingar tilbúnir ef þeir verða varir við fordóma

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir stórleikinn gegn Spáni sem verður leikinn annað kvöld.
Hann var spurður út í mögulega kynþáttafordóma sem liðið gæti mætt á Spáni og segist ætla að fara aftur yfir verkferlana með sínum mönnum.
Þetta er fyrsti leikur Englands í Madríd síðan 2004, en sú viðureign einkenndist af miklum kynþáttafordómum frá áhorfendapöllunum. Í síðasta mánuði var spænska fótboltasambandið sektað og skyldað að loka hluta af leikvanginum sínum út af níðsöngvum áhorfenda í garð múslima í æfingalandsleik gegn Egyptalandi.
„Við ræddum opinbera verkferla UEFA fyrir leikinn gegn Serbíu (Belgrad, september 2025) og við munum kannski taka okkur fimm mínútur til að rifja þá upp fyrir leikinn í Madríd ef það er til fordæmi fyrir slíkri hegðun," segir Tuchel.
Ef leikmenn verða varir við kynþáttafordóma af áhorfendapöllunum er fyrsta skrefið í verkferlum UEFA að tilkynna það til dómara. Dómara ber að stöðva leikinn og biðja um tilkynningu frá vallarþulinum.
Ef fordómafull hegðun áhorfenda heldur áfram hefur dómarinn vald til þess að stöðva leikinn aftur, í fimm til tíu mínútur í þetta skiptið, og yfirgefa leikvanginn með leikmönnum.
Ef áhorfendur eru ekki hættir að sýna fordóma eftir að leikurinn hefur verið stöðvaður tvisvar, þá hefur dómarinn vald til þess að binda enda á leikinn.
„Það er mikilvægt að leikmenn þekki verkferlana en að mínu mati er það mikilvægasta að svara inni á vellinum ef eitthvað svona gerist. Það er alltaf best að svara með sigri."
Stórþjóðirnar mætast í úrslitaleik um toppsæti í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar og þurfa Englendingar á sigri að halda til að vinna riðilinn á meðan Spánverjum nægir jafntefli. Spánn vann fyrri viðureign liðanna á Englandi eftir að hafa verið undir í hálfleik.
Báðar þjóðir eru þegar búnar að tryggja sér þátttökurétt í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar.
„Það er mikilvægt að við mætum til leiks með sama hugarfar og við gerðum á heimavelli. Við þurfum að sækja á þá og gera þetta að líkamlegum leik. Við verðum að nýta yfirburði okkar í líkamlegum styrk.
„Spánn er ótrúlega öflugt lið sem hefur gleymt því hvernig er að tapa fótboltaleik. Við þurfum að vera upp á okkar besta til að geta unnið og sigur hér myndi gera frábæra hluti fyrir sjálfstraustið okkar. Við erum klárir í þennan slag!"