Fotbolti.net
14.11.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Hraunar yfir fyrrum leikmann Barcelona sem krefst þess að fá tíuna

Ilaix Moriba er frekur

Ilaix Moriba er frekur

Canon

Mynd: EPA

Paulo Duarte, þjálfari Gíneu, hraunaði yfir miðjumanninn Ilaix Moriba eftir að sá síðarnefndi krafðist þess að fá að klæðast treyju númer tíu hjá landsliðinu.
Moriba þótti gríðarlegt efni á sínum yngri árum hjá Barcelona og lék með yngri landsliðum Spánar áður en hann ákvað að spila fyrir Gíneu árið 2022.

Ferill hans þróaðist þó ekki eins og vonir stóðu til. Hann gekk í raðir Leipzig árið 2021 en fékk lítið að spila og fór í kjölfarið nokkrum sinnum á lán til félaga í spænsku deildinni. Hann náði loks að festa sig í sessi hjá Celta Vigo, þar sem hann leikur í dag.

Moriba hefur nú lagt mikla áherslu á að fá treyju númer tíu hjá Gíneu og telur sig eiga hana skilið. Duarte vill hins vegar ekkert með þær kröfur hafa og segir sjálfsálit miðjumannsins komið langt fram úr hófi.

„Af hverju viltu tíuna? Segðu mér af hverju? Aliou Badara Balde hefur klæðst þessari treyju í tvö ár og þurft að þjást í þessi tvö ár. Hann kemur hér, leggur á sig vinnuna, sigrar og tapar, en svo kemur hinn gaurinn inn sem ég man ekki einu sinni nafnið á og segist vilja tíuna. Af hverju? Það vill enginn þetta númer. Þetta er treyja Maradona og Zico, það vill það enginn annar. Kannski ert þú of lítill til þess að klæðast þessu númeri.“

„Hvað leggur þú af mörkum fyrir tíuna? Þú ert með allt, en ertu að fara spila? Ert þú tían og ætlar þú að spila? Ertu viss um að þú viljir þetta? Því í dag vill enginn eða spáir því að spila í tíunni. Leikmenn vilja vera betri á vellinum til að verja félagið og þjóð. Það er það sem skiptir máli, en þegar egóið þitt er rosalega stórt þá hugsar þú ekki um neitt nema sjálfan þig. Það er bara ég, ég og ég,“
sagði Duarte.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.