Fotbolti.net
14.11.26 - 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man Utd fylgist með Nico Paz - Spænsku risarnir hafa áhuga á ungum Brassa

Nico Paz

Nico Paz

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Man Utd fylgist með Nico Paz, miðjumanni Como. Pochettino fær stuðning til kaupa á varnarmanni og framherja í janúar. Liverpool fylgist með ungum varnarmanni og spænsku risarnir hafa áhuga á ungum Brassa. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur það helsta saman og samantektin er í boði Powerade.
Man Utd er að fylgjast með argentíska miðjumanninum Nico Paz, 22, fyrir möguleg kaup næsta sumar. Paz skoraði tvö mörk fyrir Como gegn United í Meistaradeildinni í síðasta mánuði. (Sun)

Búist er við að nýr knattspyrnustjóri United, Mauricio Pochettino, fái stuðning í janúarglugganum og United er líklegt til að vera á höttunum eftir varnarmanni og framherja. (Telegraph)

Barcelona er tilbúið að selja franska varnarmanninn Jules Kounde, 28, í janúar. Chelsea hefur áhuga á honum. (Teamtalk)

Liverpool hefur skoðað Finn Jeltsch, 20, varnarmann Stuttgart en Bayern hefur einnig augastað á honum. (Christian Falk)

Real Madrid hefur áhuga á að næla í Vitao, 18 ára brasilískan varnarmann Atletico Mineiro. Brighton og Everton hafa einnig áhuga. (Sport)

Barcelona er annað félag sem fylgist með Vitao. (Teamtalk)

Bayern Munchen og Leverkusen eru að fylgjast með Brajan Gruda, 22, miðjumanni Brighton en hann er á láni hjá RB Leipzig. (Teamtalk)

Leeds United er að undirbúa kaup á Bilal El Khannouss, 22 ára, fyrrverandi miðjumanni Leicester frá Stuttgart, í janúarglugganum. (Football Insider)
Jules Kounde

Jules Kounde

Canon

Mynd: EPA

Finn Jeltsch

Finn Jeltsch

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.