Fotbolti.net
14.11.26 - 20:03
Ívan Guðjón Baldursson

Minnast Gauja Þórðar og senda samúðarkveðjur

Minnast Gauja Þórðar og senda samúðarkveðjur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Þórðarson, einn þeirra íslenskra þjálfara sem hafa náð hvað lengst á sínum ferli, er látinn og hafa hans fyrrum félagslið verið dugleg við að minnast hans og senda samúðarkveðjur.
Guðjón Þórðarson er látinn
TENGT EFNI

Guðjón Þórðarson er látinn

Gaui Þórðar, sem er fæddur og uppalinn á Akranesi, náði eftirtektarverðum árangri við stjórnvöl íslenska landsliðsins áður en hann var ráðinn sem aðalþjálfari Stoke City á Englandi.

Hann stýrði einnig Barnsley, Notts County og Crewe Alexandra í ensku neðri deildunum ásamt því að koma við hjá Start í Noregi og NSÍ Runavík í Færeyjum, en hann tók við uppeldisfélaginu ÍA á fjórum mismunandi tímapunktum þjálfaraferilsins.























Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.