Fotbolti.net
14.11.26 - 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"

Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"
Canon

Mynd: EPA

Brasilíumaðurinn Raphinha var allt annað en sáttur eftir 3-2 tap Brasilíu gegn Japan í æfingaleik í morgun.

Japan náði tveggja marka forystu en Vinicius Junior skoraði tvennu og jafnaði metin. Það var síðan Tatsuhiro Sakamoto, leikmaður Coventry, sem tryggði Japan sigurinn í uppbótatíma.
Brasilíumenn voru ekki sáttir og töldu að það hefði átt að dæma brot í aðdragandanum. Raphinha var farinn af velli en hann og Carlo Ancelotti mótmæltu markinu og dómarinn gaf þeim báðum rautt spjald.

„Ég biðst afsökunar á rauða spjaldinu. En það er stundum erfitt að hafa hemil á sér eftir öll þessi dómaramistök. Ég reyndi oft að tala við hann en hann neitaði að hlusta. Þetta er óásættanlegt. Við spiluðum á móti dómaranum í dag," sagði Raphinha.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.