Fotbolti.net
14.11.26 - 08:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

Þrír kallaðir inn í landsliðið

Hjörtur er varnarmaður

Hjörtur er varnarmaður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Þrír leikmenn hafa verið kallaðir inn í leikmannahóp landsliðsins fyrir leikinn gegn Lúxemborg á mánudag.

Það eru þeir Brynjar Ingi Bjarnason (Sönderjyske), Hjörtur Hermannsson (Gautaborg) og Sævar Atli Magnússon (Brann).

Þeir koma inn eftir að ljóst varð að þrír leikmenn sem tóku þátt í sigurleiknum gegn Búlgaríu í gær geta ekki tekið þátt á mánudag.
Arnar Gunnlaugs: Veit alveg hvað mínir landar munu segja
TENGT EFNI

Arnar Gunnlaugs: Veit alveg hvað mínir landar munu segja

Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason meiddust og Hörður Björgvin Magnússon verður í banni.

Landsliðið flýgur frá Plovdiv til Íslands seinni partinn í dag.

Ísland tekur á móti Lúxemborg á Laugardalsvelli klukkan 17:00 á mánudag. Ísland er í toppsæti riðilsins eftir fimm leiki af sex og vann 0-3 útisigur í fyrri leiknum gegn Lúxemborg.
Sævar Atli er sóknarmaður

Sævar Atli er sóknarmaður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjar Ingi er sömuleiðis varnarmaður.

Brynjar Ingi er sömuleiðis varnarmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.