14.11.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson
„Tími þeirra til að ná árangri hjá United er liðinn“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Paul Parker, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að nokkrir leikmenn félagsins ættu að hafa verulegar áhyggjur af framtíð sinni eftir ráðningu Mauricio Pochettino.
Michael Carrick var rekinn frá United í gær og var Pochettino kynntur sem arftaki hans í gær. Hann tekur þó ekki formlega við starfinu fyrr en 18. nóvember, eftir síðasta leik bandaríska landsliðsins í þessu landsleikjaverkefni.
United hefur verið arfaslakt á tímabilinu og ekki unnið deildarleik síðan í ágúst. Frammistaða liðsins hefur verið langt frá þeim kröfum sem gerðar eru til félagsins og segir Parker að það blasi við öllum hvaða leikmenn séu einfaldlega ekki nógu góðir fyrir United.
Hann telur að Pochettino viti nákvæmlega hvaða leikmenn um ræðir og að tími þeirra hjá félaginu sé liðinn.
„Vandamálið eru þeir sem eru enn samningsbundnir félaginu. Þeir eru ekki að fara neitt því þeir fá hvergi sömu laun og hjá United. Þeir vita líka að þeir þyrftu að leggja miklu harðar að sér en þeir hafa gert undanfarin ár.“
„Þeir hafa bara látið sig fljóta með straumnum og lifað af alla þessa stjóra. Þeim líður eins og ekkert geti komið þeim frá félaginu, en nú ættu þeir að fara að óttast um stöðu sína því leikurinn er búinn. Það vita allir hvað er í gangi.“
„Ég hef sagt þetta í mörg ár og það vita þetta allir. Ekki bara aðrir leikmenn eða einhverjir fjölmiðlamenn, heldur líka almenningur. Fólk er meira að segja farið að gagnrýna þessa leikmenn sem hafa verið að svíkjast undan skyldum sínum, gera sér upp meiðsli og birtast svo allt í einu aftur þegar nýr stjóri tekur við.“
„Ef ég sé í gegnum þessa leikmenn, þá gerir almenningur það líka. Pochettino veit klárlega hvað er í gangi og nákvæmlega hvaða leikmenn þetta eru. Þannig að sama hversu mikið þeir leggja sig fram, þá vita þeir innst inni að þeir eiga ekki framtíð hjá félaginu. Tími þeirra til að ná árangri hjá United er liðinn,“ sagði Parker við Goal.