Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 14. desember 2022 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnar Gunnlaugs og Höddi Magg spá í Frakkland - Marokkó
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörður Magnússon.
Hörður Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Seinni undanúrslitaleikurinn á HM er viðureign Frakklands og Marokkó sem fram fer í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00 en sigurliðið mætir Argentínu. Tapliðið fer í bronsleik gegn Króatíu.

Fótbolti.net fékk félagana Arnar Gunnlaugsson og Hörð Magnússon, sem báðir hafa staðið sig mjög vel í umfjöllun RÚV í kringum mótið, til þess að spá fyrir um úrslit í þessum leik.

Lestu um leikinn: Frakkland 2 -  0 Marokkó

Arnar Gunnlaugsson:

Frakkland 2 - 0 Marokkó
Er ansi hræddur um að frábærri vegferð Marokkó sé að ljúka. Frakkar séu of sterkir. Marokkó eru búnir að spila stórkostlega vörn en Frakkar eru með mörk úr öllum áttum. Deschamps á mikið hrós skilið að búa til heilsteypt lið eftir áföllin fyrir mót, og líka að missa leikmenn á motinu í meiðsli. Margir tala um framlínu Frakka en hjartað er miðjan með Griezmann endurfæddan.

Hörður Magnússon:

Frakkland 2 - 0 Marokkó
Frakkar eru með of gott lið fyrir Marokkó. Norður-Afríkumennirnir eru verðskuldað í undanúrslitum en þeirra hlutskipti verður að leika um bronsið, sem er framar þeirra björtustu vonum. Leikurinn endar 2-0, Kylian og Óliver sjá um mörkin.

Fótbolti.net spáir - Elvar Geir Magnússon:

Frakkland 3 - 0 Marokkó
Erum að fara að fá annan 3-0 leik í undanúrslitum. Ég er hræddur um að nú sjáist á marokkóska liðinu að tankurinn er að tæmast og varnarmennirnir orðnir laskaðir. Franska liðið sýndi ekki bestu hliðar sínar gegn Englandi en komst samt áfram. Það er draumaúrslitaleikur framundan á sunnudaginn og ekki síður áhugaverður bronsleikur þar sem Króatía og Marokkó munu reyna að sýna okkur aðrar hliðar. Þú ferð ekki í bronsleik og ætlar bara að verjast, eða hvað?
Athugasemdir
banner