Fotbolti.net
15.02.20 - 14:45
Ívan Guðjón Baldursson

Búlgaría: Hólmar og félagar héldu hreinu í fjandslagnum

Búlgaría: Hólmar og félagar héldu hreinu í fjandslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Levski Sofia 0 - 0 CSKA Sofia</b>
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Levski Sofia sem gerði markalaust jafntefli í nágrannaslagnum gegn CSKA.

Leikurinn var frekar lokaður þar sem heimamenn í Levski fengu fleiri og hættulegri færi en komu knettinum ekki í netið.

Hólmar Örn hefur verið meðal bestu leikmanna Levski á tímabilinu og er liðið með næstbestu vörn deildarinnar. Levski hefur aðeins fengið 13 mörk á sig í 21 leik og er í öðru sæti, fjórum stigum eftir toppliði Ludogorets sem á leik til góða.

CSKA er í fjórða sæti, fjórum stigum eftir Levski.

Næsti leikur Hólmars og félaga er á útivelli gegn Cherno More næsta laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.