Real hættir við Guehi - Liverpool horfir til Wolfsburg - Barca getur ekki borgað uppsett verð - Mainoo til Napoli
   lau 15. febrúar 2020 14:25
Ívan Guðjón Baldursson
England: Westwood skoraði beint úr hornspyrnu í sigri Burnley
Southampton 1 - 2 Burnley
0-1 Ashley Westwood ('2)
1-1 Danny Ings ('18)
1-2 Matej Vydra ('60)

Viðureign Southampton og Burnley byrjaði á ansi furðulegan hátt, þegar Ashley Westwood skoraði beint úr hornspyrnu.

Danny Ings átti að passa nærstöngina en hann virtist ekki alveg vera með sína eigin staðsetningu á hreinu. Í stað þess að hreinsa knöttinn í burt færði hann sig frá honum og leyfði að leka í netið.

Ings bætti upp fyrir mistökin með góðu jöfnunarmarki á 18. mínútu og var staðan jöfn í leikhlé, 1-1.

Matej Vydra var skipt inn í fyrri hálfleik eftir meiðsli Chris Wood og lét hann til sín taka með glæsilegu marki á 60. mínútu.

Ralph Hasenhüttl skipti Michael Obafemi og Che Adams inn á lokakaflanum en þeim tókst ekki að bjarga stigi. Pierre-Emile Hojbjerg komst nálægt því að jafna í uppbótartíma en Nick Pope gerði vel að verja frá honum með brjóstkassanum.

Burnley hirðir því stigin þrjú og fer upp í 34 stig, fimm stigum frá Evrópusæti. Southampton situr eftir með 31 stig.

Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í hópi Burnley vegna meiðsla. Líklegt er að hann verði klár í slaginn fyrir næsta leik gegn Bournemouth.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 10 8 1 1 18 3 +15 25
2 Man City 10 6 1 3 20 8 +12 19
3 Liverpool 10 6 0 4 18 14 +4 18
4 Sunderland 10 5 3 2 12 8 +4 18
5 Bournemouth 10 5 3 2 17 14 +3 18
6 Tottenham 10 5 2 3 17 8 +9 17
7 Chelsea 10 5 2 3 18 11 +7 17
8 Man Utd 10 5 2 3 17 16 +1 17
9 Crystal Palace 10 4 4 2 14 9 +5 16
10 Brighton 10 4 3 3 17 15 +2 15
11 Aston Villa 10 4 3 3 9 10 -1 15
12 Brentford 10 4 1 5 14 16 -2 13
13 Newcastle 10 3 3 4 10 11 -1 12
14 Everton 10 3 3 4 10 13 -3 12
15 Fulham 10 3 2 5 12 14 -2 11
16 Leeds 10 3 2 5 9 17 -8 11
17 Burnley 10 3 1 6 12 19 -7 10
18 West Ham 10 2 1 7 10 21 -11 7
19 Nott. Forest 10 1 3 6 7 19 -12 6
20 Wolves 10 0 2 8 7 22 -15 2
Athugasemdir
banner
banner
banner