Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. febrúar 2020 13:33
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Breiðablik skoraði átta gegn Selfossi
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Breiðablik 8 - 1 Selfoss
1-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('14)
2-0 Agla María Albertsdóttir ('28)
3-0 Agla María Albertsdóttir ('38)
4-0 Alexandra Jóhannsdóttir ('43)
5-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('50)
6-0 Agla María Albertsdóttir ('54)
7-0 Agla María Albertsdóttir ('67)
7-1 Magdalena Anna Reimus ('73)
8-1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('83)

Breiðablik fór af stað með látum í Lengjubikarnum og skoraði átta mörk gegn bikarmeisturum Selfoss.

Agla María Albertsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir léku á alls oddi og skoruðu saman sjö mörk í leiknum. Alexandra Jóhannsdóttir gerði eitt.

Magdalena Anna Reimus átti eina mark Selfyssinga og kom það á 73. mínútu, í stöðunni 7-0.

Fylkir og Stjarnan eru einnig í riðlinum og spiluðu í gærkvöldi. Fylkir hafði þar betur, 3-0.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner