Fotbolti.net
15.02.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland í dag - Alfreð og Samúel Kári eiga heimaleiki

Alfreð hefur skorað 34 mörk í 79 deildarleikjum með Augsburg.

Alfreð hefur skorað 34 mörk í 79 deildarleikjum með Augsburg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru sex leikir á dagskrá í þýska boltanum í dag og tvö Íslendingalið sem stíga á svið.
Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg eiga heimaleik gegn Freiburg á meðan Samúel Kári Friðjónsson og liðsfélagar hans í Paderborn taka á móti Hertha Berlin.

Alfreð er ekki búinn að skora eftir að hafa komið aftur til baka úr meiðslum. Hann byrjaði í 5-0 tapi gegn Eintracht Frankfurt í síðustu umferð.

Samúel Kári var keyptur til Paderborn í janúar en hefur ekki fengið tækifæri með botnliðinu.

RB Leipzig getur komist á topp deildarinnar með sigri gegn Werder Bremen á heimavelli á sama tíma og Hoffenheim mætir Wolfsburg í áhugaverðum slag.

Bayer Leverkusen heimsækir nýliða Union Berlin áður en Fortuna Düsseldorf tekur á móti Borussia Mönchengladbach í síðasta leik dagsins.

Leverkusen og Gladbach eru í harðri Meistaradeildarbaráttu þar sem aðeins tvö stig skilja liðin að.

Leikir dagsins:
14:30 Union Berlin - Leverkusen
14:30 Paderborn - Hertha Berlin
14:30 Augsburg - Freiburg
14:30 RB Leipzig - Werder
14:30 Hoffenheim - Wolfsburg
17:30 Fortuna Dusseldorf - Gladbach

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.