Fotbolti.net
15.04.24 - 14:19
Elvar Geir Magnússon

Búast við stjóraskiptum hjá Juventus í sumar

Búast við stjóraskiptum hjá Juventus í sumar
Canon

Mynd: Getty Images

La Repubblica segir að fastlega sé búist við því að Massimiliano Allegri verði ekki áfram stjóri Juventus á næsta tímabili.

„Tilfinningin er sú að þessari sögu sé lokið," segir í umfjöllun blaðsins en Juventus hefur aðeins unnið tvo af ellefu síðustu leikjum sínum.

Juve er áfram í þriðja sæti ítölsku A-deildarinnar og talið að Allegri láti af störfum þrátt fyrir að vera með samning út næsta tímabil.
Allegri hefur fengið gagnrýni fyrir slæm úrslit og einnig fyrir leikstíl og spilamennsku liðsins.

Juventus hefur ekki unnið bikar síðustu tvö tímabil en á möguleika á því að vinna ítalska bikarinn. Liðið vann Lazio í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta9-111
14Lecce10-109
15Sassuolo9-88
16Monza10-77
17Fiorentina9-105
18Parma9-105
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.