Serbía 0 - 3 Ísland
0-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('28)
0-2 Freyja Stefánsdóttir ('36)
0-3 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('50)
Upplýsingar fengnar frá UEFA
0-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('28)
0-2 Freyja Stefánsdóttir ('36)
0-3 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('50)
Upplýsingar fengnar frá UEFA
Íslenska U19 ára landslið kvenna vann 0-3 sigur á heimakonum í Serbíu í undankeppni EM og tryggði sér með því farmiðann á EM í sumar!
Fyrir leikinn var ljóst að sigur myndi tryggja sætið á EM.
Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðabliki) skoraði fyrsta mark leiksins á 28. mínútu eftir að Hildur Katrín Snorradóttir (FH) átti skot sem markvörður Serba varði. Edith lagði svo upp mark fyrir Freyju Stefánsdóttur (Víkingi) á 36. mínútu.
Á 50. mínútu lagði svo Freyja upp þriðja markið fyrir Berglindi Freyju Hlynsdóttur (FH) sem innsiglaði sigur Íslands.
Ísland endar með sjö stig á toppi riðilsins, Danir enda í öðru sæti, Finnar í þriðja og Serbar í neðsta sæti.
EM fer fram í Bosníu og Hersegóvínu í sumar. Mótið hefst 27. júní og lýkur 10. júlí. Einungis átta lið fara á mótið og þegar þetta er skrifað hafa einungis heimakonur og Ísland tryggt sér þátttökurétt í mótinu.
Samkvæmt Wikipedia hefur U19 kvenna nú fjórum sinnum komist í lokamót EM. Fyrst 2007, svo 2009 og síðast 2023.
