Fotbolti.net
15.05.22 - 22:09
Elvar Geir Magnússon

Halli Björns: Ekki slæmt að eiga geit á bekknum

Auglýsing
Halli Björns: Ekki slæmt að eiga geit á bekknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Björnsson átti góðan leik í marki Stjörnunnar í kvöld. Stjarnan vann Val í Garðabænum en eina mark leiksins kom í uppbótartíma. Varamaðurinn Óskar Örn Hauksson lagði upp fyrir annan varamann, Oliver Haurits.
„Við höfum talað um það að við erum í helvíti góðu formi og eigum að geta klárað leiki svona seint. Hinsvegar höfum við verið að fá á okkur mörk seint í leikjum og það verið svekkjandi. En sem betur fer náðum við að halda þetta út í kvöld," segir Haraldur.

„Það er ekki slæmt að eiga eina geit á bekknum sem getur breytt leikjum," segir Haraldur en Óskar kom inn sem varamaður og bjó til sigurmarkið.

„Hann er eflaust pirraður yfir því að vera á bekknum tvo leiki í röð en hann kom inn og kláraði leikinn með geggjuðum bolta. Það sýnir styrk."

Sjáðu viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Haraldur meðal annars um muninn á andrúmsloftinu núna og á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.