Fotbolti.net
15.05.22 - 20:42
Anton Freyr Jónsson

Jón Þór: Þurfum að hætta að spila gegn sjálfum okkur

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA var að vonum svekktur eftir 0-3 tapið gegn KA á Norðurálsvellinum fyrr í dag. 

„Nei ég er mjög svekktur eins og þú segir, mér finnst þetta vera mjög ódýr mörk sem við erum að fá á okkur og eitthvað sem við eigum auðveldlega að getað komið í veg fyrir."

Já auðvitað. Það ræður úrslitum í leikjum hvort þú nýtir færin þín eða ekki. Við erum að gefa ódýr mörk í þessum leik og ekki að nýta okkar sénsa að þá taparu leikjum, það er svoleiðis."

Skagamenn hafa verið að fá á sig mikið af mörkum í síðustu þremur leikjum og segir Jón Þór að það þurfi að laga varnarleik liðsins. 

„Það er verkefni okkar, mér fannst við fara ágætlega af stað í mótinu hvað það varðar en síðan er það bara einbeitingarleysi og menn missa hausinn og við erum að gefa alltof ódýr mörk. Það er allt í góðu ef lið sundurspila þig og spila sig í gegnum þá stenduru bara upp og klappar fyrir því en við vorum bjóða upp á alltof marga möguleika gegn okkur."

ÍA er búið að spila gegn Breiðablik,Val og KA núna í síðustu þremur leikjum og fer liðið til Eyja í næstu umferð og var Jón Þór spurður hvort liðið ætlaði sér ekki þrjá punkta í því verkefni. 

„Við þurfum allaveganna byrja á því að hætta að spila gegn sjálfum okkur og gefa andstæðingunum eða bjóða þeim þetta sem við erum bjóða uppá hérna í dag og það er númer 1,2 og þrjú að við förum að einbeita að okkur sjálfum sama hver anstæðingurinn er."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.