Fotbolti.net
15.06.21 - 18:55
Victor Pálsson

Vináttulandsleikur: Annar sigur gegn Írlandi staðreynd

Úr leiknum í dag.

Úr leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland 2 - 0 Írland
1-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('53 )
2-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('83 )
Íslenska kvennalandsliðið vann sanngjarnan sigur á Laugardalsvelli í dag er liðið mætti Írlandi í æfingaleik.

Um var að ræða annan leik liðanna á stuttum tíma en Ísland vann fyrri leik liðanna með markatölunni 3-2.

Annar sigur var á boðstólnum í dag en íslenska liðið skoraði tvö mörk gegn engu frá gestunum.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir gerði fyrra mark Íslands á 53. mínútu eftir undirbúning Andreu Rán Snæfeld Hauksdóttur.

Á 83. mínútu skoraði Ísland sitt annað mark er Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði laglegt mark til að gulltryggja sigurinn.

Niðurstaðan 2-0 sigur fyrir framan rúmlega 700 áhorfendur í Laugardal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.