Fotbolti.net
15.08.21 - 17:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

DB Pridham frá ÍBV í Kristianstad (Staðfest)

Frá ÍBV til Kristianstad.

Frá ÍBV til Kristianstad.

Canon

Mynd: Kristianstad

Kvennaboltinn
Sóknarmaðurinn Delaney Baie Pridham er gengin í raðir Íslendingaliðsins Kristianstad í Svíþjóð.
Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad, sem er eitt af sterkari liðum sænsku úrvalsdeildarinnar, Björn Sigurbjörnsson er aðstoðarþjálfari og eru Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir á meðal leikmanna liðsins.

DB, eins og hún er kölluð, kom til ÍBV fyrir tímabilið og skoraði sjö mörk í tíu leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar.

DB spilaði fyrir DeAnza Force Youth liðið í ECNL deild Bandaríkjanna, sem er sú sterkasta í yngri flokkum þar í landi. Hún spilaði svo seinna með háskólaliði Santa Clara.

Núna er næsta verkefni hennar með Kristianstad þar sem hún og Sveindís Jane munu væntanlega vinna mikið saman í sóknarleiknum.

Kristianstad er þessa stundina í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, en liðið tekur þátt í Meistaradeildinni á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.