Fotbolti.net
15.09.26 - 11:41
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Tottenham að ráða Ausilio í starf bak við tjöldin

Tottenham að ráða Ausilio í starf bak við tjöldin
Canon

Mynd: EPA

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að fyrrverandi stjórnarmaður Inter, Piero Ausilio, sé að nálgast samkomulag um að taka við sem íþróttastjóri Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni.

Ausilio starfaði í 28 ár hjá Inter í hinum ýmsum hlutverkum og lét af störfum sem íþróttastjóri félagsins í september, daginn eftir að sumarglugganum var lokað.
Fyrsta starf hans var í kringum yngri lið Inter en var í rúmlega áratug sem íþróttastjóri. Hjá Tottenham er hann hugsaður stórt hlutverk á leikmannamarkaðnum.

Það eru sterkar ítalskar tengingar hjá Tottenham. Roberto De Zerbi er þar stjóri og liðið er með Sandro Tonali og Destiny Udogie meðal leikmanna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.