Lionel Messi sneri aftur í lið Argentínu eftir þriggja mánaða bann og var ekki lengi að láta til sín taka í æfingaleik gegn erkifjendunum í Brasilíu.
Messi var eftir Copa America síðasta sumar dæmdur í þriggja mánaða bann sem hann fékk fyrir að saka mótshalda um spillingu, eftir tap gegn Brasilíu í undanúrslitunum.
Hann er búinn að sitja bannið af sér og mætti aftur í landslið Argentínu í dag, í leik gegn Brasilíu sem spilaður var í Sádí-Arabíu.
Messi skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 13. mínútu. Hann nældi í vítaspyrnuna sjálfur.
Stuttu áður en Messi skoraði hafði Brasilía fengið vítaspyrnu. Jesus setti boltann fram hjá markinu.
Byrjunarlið Brasilíu: Alisson, Danilo, Eder Militao, Thiago Silva, Alex Sandro, Casemiro, Arthur, Paqueta, Willian, Firmino, Jesus.
Byrjunarlið Argentínu: Andrada, Foyth, Otamendi, Pezzella, Tagliafico, Lo Celso, Paredes, De Paul, Ocampos, Martinez, Messi.
Athugasemdir