Fotbolti.net
15.11.20 - 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Bakayoko verður keyptur eftir áramót

Bakayoko verður keyptur eftir áramót
Canon

Mynd: Chelsea FC

Miðjumaðurinn Tiemoue Bakayoko hefur verið að standa sig vel á fyrstu vikunum á lánssamningi hjá Napoli í ítalska boltanum.
Bakayoko, 26 ára, er hjá Napoli að láni frá Chelsea en samningur hans við úrvalsdeildarfélagið gildir til 2022.

Hann hefur hrifið Gennaro Gattuso og þjálfarateymi hans og greina ítalskir fjölmiðlar frá því að félagið sé búið að ákveða að ganga frá kaupunum.

Napoli og Chelsea eru því í viðræðum um kaupverð og telja ítalskir fjölmiðlar líklegt að félögin muni komast að samkomulagi í kringum 20 milljónir evra.

Bakayoko kostaði 40 milljónir þegar hann gekk í raðir Chelsea fyrir þremur árum.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.