Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   sun 15. nóvember 2020 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno Fernandes: Alltof langt síðan við unnum úrvalsdeildina
Bruno Fernandes var ekki lengi að finna taktinn eftir komu sína til Manchester United í janúar og hefur tekist að stimpla sig inn sem lykilmaður í liði Rauðu djöflanna.

Fernandes segir að sér sé sama um hvað fólk segir, hann telur leikmenn Man Utd hafa hugarfarið sem þarf til að vinna ensku úrvalsdeildina þó félagið hafi ekki unnið titil síðan 2017.

„Að mínu mati þá skipta önnur lið engu máli, þó einhver segi að eitthvað lið sé betra heldur en Man Utd þá er mér alveg sama. Ég kom til Manchester til að vinna titla og það er markmið félagsins," sagði Fernandes í samtali við UTD Podcast.

„Ég er partur af risastóru félagi með ríka sögu að baki. Það er alltof langur tími síðan við unnum úrvalsdeildina og það er eitthvað sem við erum að vinna í. Allir leikmenn og allir í starfsteyminu eru með sama hugarfar. Við erum öll hérna til þess að sigra og það er gríðarlega mikilvægt."

Fernandes ræddi svo jákvæðu áhrifin sem Michael Carrick, fyrrum leikmaður og núverandi partur af þjálfarateymi Man Utd, hefur á sig.

„Ég var að spjalla við Fred um daginn og ætlaði að gefa honum einfalt ráð. Ég ætlaði að segja honum að fylgjast með Carrick spila og herma eftir honum. Svo hugsaði ég að það væri ósanngjarnt og sleppti því að segja þetta við hann.

„Ég er að læra mikið af Carrick og mér finnst mjög gott að hlusta á hann. Hann var mikilvægur leikmaður og vann mikið af titlum hjá félaginu. Það er mikilvægt að læra af svona mönnum."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner