Það voru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu er síðasta umferð tímabilsins fór fram í efstu deild sænska kvennaboltans í dag.
Guðbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún Arnardóttir léku allan leikinn er Djurgården bjargaði sér frá falli með verðskulduðum 2-0 sigri á botnliði Uppsala.
Glódís Perla Viggósdóttir var þá í hjarta varnarinnar er Rosengård tapaði óvænt fyrir Växjö en úrslitin skiptu litlu sem engu máli fyrir Rosengård sem lýkur keppni í 2. sæti.
Elísabet Gunnarsdóttir og lærimeyjar hennar í Kristianstad enda í þriðja sæti eftir tap á heimavelli gegn Linköping.
Svava Rós Guðmundsdóttir fékk að spreyta sig á lokakaflanum í 1-2 tapi.
Djurgården 2 - 0 Uppsala
1-0 R. Bloznalis ('4)
2-0 L. Motihalo ('79)
Rosengård 0 - 1 Vaxjö
0-1 S. Andersen ('38, víti)
Kristianstad 1 - 2 Linköping
1-0 Hailie Mace ('23)
1-1 Rachel Hill ('49)
1-2 Rachel Hill ('69)
Athugasemdir