Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 15. nóvember 2022 20:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmenn fengu gullskó, gullbolta og gullhanska afhenta
Adam Ægir Pálsson
Adam Ægir Pálsson
Mynd: ÍTF

Í síðustu viku veitti íslenskur Toppfótbolti, í samstarfi við Nike, verðlaun fyrir markahæsta leikmann, stoðsendingahæsta leikmann og Besta markmann Bestu deildarinnar.


Jasmín Erla Ingadóttir og Nökkvi þeyr Þórissson hlutu Gullskó Nike fyrir flest mörk skoruð. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og Adam Ægir Pálsson hlutu Gullbolta Nike fyrir flesta stoðsendingar. Og loks hlutu Sandra Siguðardóttir og Anton Ari Einarsson Gullhanska Nike fyrir að halda markinu oftast hreinu á nýliðnu tímabili.

Nökkvi skoraði 17 mörk í 20 leikjum og Jasmín skoraði 11 mörkí 18 leikjum. 

Nökkvi og Anton áttu ekki heimagengt og fá verðlaun sín afhent seinna. Það var Hlynur Valsson vörumerkjastjóri Nike sem afhenti leikmönnunum verðlaunin.


Athugasemdir
banner
banner
banner