15.11.26 - 19:05
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Trafford, White og Konsa byrja

Trafford átti ekki góðan leik þegar England tapaði 2-3 gegn Spáni í lok september.

Mynd: EPA

Lamine Yamal var ekki í hóp gegn Tékkum en byrjar í kvöld.

Það fara fjórir leikir fram í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld þar sem barist er um toppsætin í tveimur riðlum.
Risaslagur kvöldsins fer fram á Spáni þegar ríkjandi heims- og Evrópumeistarar taka á móti gífurlega sterku landsliði Englands. Luis de la Fuente og Thomas Tuchel þjálfarar tefla fram sterkustu mögulegum byrjunarliðum sínum og eru stórveldin að berjast um toppsæti riðilsins.
Spánverjum nægir jafntefli til að tryggja toppsætið á meðan Englendingar þurfa sigur. Það er ýmislegt sem kemur á óvart í liðsuppstillingunum, Lamine Yamal er í nægilega góðu standi til að byrja á meðan James Trafford fær tækifæri á milli stanga Englands og byrjar Ben White í hægri bakverði í stað Trent Alexander-Arnold. Ezri Konsa er þá nógu heill til að byrja leikinn eftir að hafa misst af leiknum gegn Króatíu.
Marc Pubill og Aymeric Laporte byrja þá báðir í varnarlínu Spánverja á meðan Martín Zubimendi fær tækifæri á miðjunni ásamt Mikel Merino samherja sínum hjá Arsenal. Rodri er fjarverandi vegna meiðsla. Álex Baena byrjar á vinstri kanti með Ferran Torres, Fermín López og Nico Williams á varamannabekknum.
Belgía og Ítalía eigast svo við í toppslag og fær Luca Koleosho tækifæri í liði Ítala ásamt Niccoló Pisilli og Nicoló Fagioli, á meðan Frakkar taka fá heimsókn frá Tyrkjum.
Kylian Mbappé er kominn aftur í byrjunarliðið hjá Frakklandi eftir smávægileg meiðsli og nægir þessari miklu fótboltaþjóð jafntefli í kvöld til þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar, þrátt fyrir óvænt tap á Ítalíu fyrir helgi.
Arda Güler og Hakan Calhanoglu eru saman í byrjunarliði Tyrkja.
Króatía og Tékkland mætast að lokum í botnslag og er 41 árs Luka Modric á sínum stað í byrjunarliði Króata ásamt Mateo Kovacic, Ivan Perisic og fleiri gæðamiklum leikmönnum.
Spánn: Simon, Pubill, Cubarsi, Laporte, Cucurella, Zubimendi, Ruiz, Merino, Yamal, Baena, Oyarzabal
England: Trafford, White, Konsa, Quansah, Hall, Anderson, Rice, Bellingham, Rogers, Gordon, Kane
Belgía: Lammens, Castagne, Ngoy, Mechele, De Cuyper, Lavia, Tielemans, De Bruyne, Moreira, Doku, De Ketelaere
Ítalía: Donnarumma, Kayode, Scalvini, Bastoni, Calafiori, Barella, Tonali, Fagioli, Pisilli, Koleosho, Pio Esposito
Frakkland: Maignan, Kumbedi, Jacquet, Konate, Diouf, Da Cunha, Rabiot, Cherki, Olise, Barcola, Mbappe
Tyrkland: Ozer, Celik, Demiral, Bardakci, Topcu, Elmali, Yuksek, Uzun, Calhanoglu, Guler, Gul
Króatía: Livakovic, Stanisic, Vuskovic, Caleta-Car, Gvardiol, Modric, Kovacic, Sucic, Perisic, Baturina, Beljo
Tékkland: Kinsky, Coufal, Vicek, Zima, Slama, Kral, Cerv, Sadilek, Hopi, Kabongo, Hlozek